Tónlistar­maðurinn


Tónlistarmaðurinn (Erling Blöndal Bengtsson), 1974.

Tónlistarmaðurinn var frumsýndur í gifsi á Den Nordiske í Charlottenborg, Kaupmannahöfn, árið 1974. Reykjavíkurborg keypti verkið og lét steypa í brons. Höggmyndin stóð upphaflega við Hagatorg eða frá 1977. Á þeim tíma var Háskólabíó helsti tónlistasalur landsins og aðsetur Sinfóníuhljómsveitarinnar. Segja má að Tónlistarmaðurinn hafi flust með Sinfóníunni og þann 4. september 2014 var verkinu komið fyrir við tónlistarhúsið Hörpuna við Reykjavíkurhöfn.

Fyrirmyndin að verkinu var sellóleikarinn Erling Blöndal Bengtsson. Þegar Erling sat fyrir við gerð styttunnar urðu þau Ólöf ásátt um að hann myndi spila á meðan hún vann. Ólöf sagðist sjaldan eða aldrei hafa notið þess eins vel að vinna nokkurt verk, enda ekki öll módel sem gætu gefið svo mikið til baka á meðan unnið væri.

Litmyndirnar hér að neðan eru stillur úr 8mm kvikmynd sem tekin var af sköpunarferli Tónlistarmannsins í Kaupmannahöf árið 1974.